Þjónustuskilmálar
1. KAFLI - AÐGANGUR OG REIKNINGUR
Viðskiptavinir sem stofna aðgang á Magneyja.is geta verið beðnir um að veita ákveðnar upplýsingar, svo sem netfang, símanúmer, heimilisfang og fleira.
Viðskiptavinur ábyrgist að allar uppgefnar upplýsingar séu réttar.
2. KAFLI - VÖRURNAR OKKAR
Við reynum að veita nákvæma mynd af vörunum okkar í netverslun. Vinsamlegast athugið að litir eða útlit vöru geta verið frábrugðin því hvernig hún birtist á skjánum þínum vegna stillinga tækisins sem þú notar.
Allar lýsingar á vörum geta breyst hvenær sem er án fyrirvara. Við áskiljum okkur rétt til að hætta framleiðslu á hvaða vöru sem er hvenær sem er.
3. KAFLI - VERÐ
Uppgefin verð innihalda virðisaukaskatt og geta breyst án fyrirvara.
4. KAFLI - PANTANIR
Ef við neitum að afgreiða pöntun eða þurfum að hætta við pöntun útaf einhverjum ástæðum munum við hafa samband og ganga frá endurgreiðslu innan þriggja virkra daga.
Ef við þurfum að gera breytingar á hönnun eða að breyta pöntun munum við hafa samband við þig í uppgefið símanúmer og/eða netfang.
Seljandi ber ekki ábyrgð ef kaupandi sendir inn myndir í lélegum gæðum. Vinsamlegast farðu vandlega yfir pöntunina áður en þú gengur frá kaupum.
5. KAFLI - DÆMI UM ÁSTÆÐUR FYRIR HÖFNUN Á PÖNTUN
Magneyja áskilur sér rétt til að hafna pöntuninni þinni af hvaða ástæðu sem er, án útskýringa.
Pantanir sem innihalda t.d. hatursorðræðu, kynþáttaníð og annan sora verða ekki prentaðar.
Nektarmyndir sem sýna kynfæri verða ekki prentaðar nema með formlegu leyfi frá þeim sem er á myndinni.
6. KAFLI - SENDING OG AFHENDING
Við bjóðum upp á sendingar með Dropp og Póstinum. Við bjóðum einnig upp á heimsendingar í þéttbýlisstöðum í Árborg.
Við bjóðum upp á fría sendingu með Dropp eða heimsendingu í Árborg ef pantað er fyrir 20.000 kr eða meira.
Dropp sendingar verða afhentar sem næst uppgefnu heimilisfangi, nema annað sé tekið fram. Hægt er að biðja um annan afhendingarstað á magneyja@magneyja.is.
Kaupandi fær sendingarnúmer í tölvupósti eftir að pöntun er afgreidd og afhent til flutningsaðila.
Seljandi skuldbindur sig til að klára og afhenda allar pantanir eins fljótt og hægt er.
Seljandi bera ekki ábyrgð á töfum af völdum flutningsaðila eða annara óviðráðanlegra atvika sem seljandi hefur ekki stjórn á.
7. KAFLI - Skilaréttur
Við bjóðum upp á 30 daga skilafrest, sem þýðir að þú hefur 30 daga frá því að þú móttekur vöruna til að óska eftir skilum.*
Til að eiga rétt á endurgreiðslu verður varan að vera í sama ástandi og þú móttekur hana. Þú þarft einnig kvittun eða sönnun fyrir kaupum.
Áður en skilað er skal hafa samband við okkur á magneyja@magneyja.is.
Sendingakostnaður vegna vöruskila er á kostnað kaupanda nema um sé að ræða gallaða vöru.
Þú getur alltaf haft samband við okkur ef þú hefur einhverjar spurningar varðandi skil á magneyja@magneyja.is.
Tjón og vandamál
Vinsamlegast skoðið pöntunina við móttöku og hafið samband við okkur tafarlaust ef varan er gölluð, skemmd eða vitlaust afhent, svo hægt sé að bregðast við sem fyrst.
*Undantekningar / vörur sem ekki má skila
Ekki er hægt að skila ákveðnum vörutegundum, sérsniðnum vörum (eins og sérpantanir eða persónulegum vörum).
Vinsamlegast hafið samband ef þið hafið spurningar eða áhyggjur varðandi vöru.
Ekki er hægt að skila útsöluvörum og gjafakortum.
Endurgreiðslur
Við munum láta þig vita þegar við höfum móttekið og skoðað skilavöruna og láta þig vita hvort endurgreiðslan var samþykkt eða ekki. Ef hún er samþykkt færðu sjálfkrafa endurgreiðslu með upprunalegu greiðslumáta innan 10 virkra daga. Vinsamlegast hafðu í huga að það getur tekið smá tíma fyrir bankann þinn eða kreditkortafyrirtækið að vinna úr og senda endurgreiðsluna.
Ef meira en 14 dagar eru liðnir frá því að við samþykktum skilin, vinsamlegast hafðu samband við okkur á magneyja@magneyja.is.
8. KAFLI - HUGVERKARÉTTUR
Það má ekki afrita, dreifa, breyta, búa til afleidd verk af, birta opinberlega, flytja opinberlega, endurbirta, hlaða niður, geyma eða senda neitt af efninu á síðunni án skriflegs samþykkis okkar.
Nöfn, lógó, vöru- og þjónustuheiti, hönnun og slagorð Magneyju eru vörumerki Kúnzt ehf, tengdra aðila þess eða leyfisveitenda. Það ekki nota slík vörumerki án skriflegs leyfis frá eiganda.
9. KAFLI - PERSÓNUVERNDARSTEFNA
Allar persónuupplýsingar sem Kúnzt ehf aflar í gegnum Magneyja.is verða meðhöndlaðar í samræmi við gildandi lög.
10. KAFLI - Upplýsingar um seljanda
Kúnzt ehf.
710108-1530
Vsk númer 97007
Spurningar um þjónustuskilmálana skal senda á netfangið magneyja@magneyja.is.